Tix.is

Um viðburðinn

Skautasvell í Jólabænum Hafnarfirði frá 10. nóvember til 23. desember 2023

Í nóvember og desember mun Hafnarfjarðarbær í samvinnu við Bæjarbíó starfrækja Hjartasvellið, 200 fermetra skautasvell fyrir ungt fólk á öllum aldri. Svellið var opnað á aðventunni 2021 og hefur aldeilis slegið í gegn hjá unga fólkinu. Hjartasvellið verður í ár, líkt og í fyrra staðsett beint á móti Bæjarbíó fyrir utan Bókasafn Hafnarfjarðar. Þessi staðsetning mun tengja mjög skemmtilega saman Jólaþorpið í miðbænum og ljósadýrðina í Hellisgerði. Svo er tilvalið að skella sér á Bókasafn Hafnarfjarðar eftir skautaferðina, ylja sér og glugga í bók.

100% vistvænt og 100% skemmtilegt

Hjartasvellið er 100% vistvænt þar sem hvorki vatn né rafmagn er notað til að frysta það. Svellið er byggt á sérhönnuðum gerviísplötum sem hafa sömu eiginleika og venjulegur ís sem býður uppá frábæra afþreyingu, upplifun og hreyfingu fyrir alla fjölskylduna. Skautaferðirnar eru þegar komnar í sölu á tix.is og innifalin er leiga á skautum og hjálmi. Best að panta ferðina á tix.is

Hjartasvellið verður opið sem hér segir
  • Fimmtudaga frá kl. 16-21 (Frá 30. nóvember)

  • Föstudaga frá kl. 16-21

  • Laugardaga frá kl. 12-21

  • Sunnudaga frá kl. 12-18

Fyrirkomulagið er einfalt:
  • Þú pantar þína skautaferð og skauta á https://tix.is/is/event/16436/hjartasvelli- og www.tix.is (best er að tryggja sér skautaferðina með því að kaupa miða fyrirfram á netinu)

  • Hver skautaferð er 40 mín og hefst á heila tímanum

  • Mikilvægt er að mæta tímanlega til að forðast raðir

  • Hægt er að kaupa allt að átta ferðir á4.000 kr í sérstökum fjölskyldupakka og reiknast afslátturinn í körfunni sjálfkrafa. Eingöngu er hægt að kaupa fjöldskyldupakkann á tix.is